Lambakjöt
Íslenska lambakjötið hefur ávallt þótt gæðavara. Lömb sem ganga á fjölbreytilegu gróðurlendi Mývatnsöræfa, hafa einstök bragðgæði.
Við tökum kjötið heim strax eftir slátun og látum það hanga og meyrna fyrir frystingu. Við það verður kjötið bragðmeira og er tilbúið til eldunnar strax eftir þiðnun.
Eftirfarandi vörur eru til sölu úr lambakjöti:
Reykt lambakjöt:
- Hangilæri (uppselt) verð pr. kg. 2.900,-
- Tvíreykt hangilæri (uppselt) verð pr. kg. 3.400,-
- Léttreyktur hryggur uppselt) verð pr. kg. 2.900,-
- Reyktur bógur uppselt) verð pr. kg. 2.400,-
- Reyktur frampartur. (uppselt) verð pr. kg. 1.800,-
Allt hangikjöt er selt með beini. (gera pöntun)
Ferskt og frosið lambakjöt:
Allt lambakjötið er fitusnyrt og pakkað í neytendapakkningar.
Okkar markmið er að afgreiða einungis úrvalskjöt sem tilbúið er til matreiðslu þ.e. læri, hryggur, bógar, framhryggjabitar og valið súpukjöt. Rif, slög og hæklar verða ekki í pakkanum.
Af 15 kg lambskrokk eru u.þ.b. 11 kg. af úrvalskjöti.
- Heill skrokkur - læri heil, hryggur heill, bógar og framhryggjasneiðar
magn í pakka ca. 10 – 14 kg af úrvalskjöti verð pr. kg. 1.550,- (uppselt)
- Skrokkur án læra - hryggur heill, bógar og framhryggjasneiðar
magn í pakka ca. 6 – 8 kg af úrvalskjöti verð pr. kg. 1.300,- (uppselt)
Við vekjum athygli á að bógur er afar bragðmikil og safarík steik þar sem mun meiri fitulög eru í kjötinu. Bógur er minni biti en læri og hentar því vel þar sem færri eru í heimili.
Súpukjöt:
- sérvalið súpukjöt (án rifjabita og umfram fitu) uppselt) verð pr. kg. 1.300,-Hryggur: verð pr. kg. 1.500,-
Bógur: verð pr. kg. 1.200,-
-- oo --
Ef kaupandi hefur sérstakar óskir varðandi vöruna þá vinsamlegast hafið samband við okkur símleiðis eða á tölvupósti. Ef sérstakar óskir eru um sögun á nýju kjöti þarf það að berast með pöntun.
Á pöntunarformi koma fram valmöguleikar um greiðslu- og afhendingarmáta en ávallt verður haft samband áður en varan verður send kaupanda.
Þegar pöntunarformið er fyllt út skal gæta þess að skrifa í alla stjörnumerkta reiti, smella síðan á hnappinn "áfram" og ef engu þarf að breyta þá er smellt á hnappinn "senda". Í lokin kemur staðfesting um að pöntun hafi verið send. Við svörum síðan öllum pöntunum með tölvupósti.
Flutningskostnaður er ekki innifalinn í verðinu.


