Framleiðslan
Við erum með þrjár vörulínur, þ.e. lambakjöt, sauðakjöt og ærkjöt. Við leggjum áherslu á kofareykta hangikjötið og þar má helst nefna:
- Hangilæri til suðu "jólahangikjötið"
- Léttreyktir hryggir
- Tvíreykt kjöt - borið fram hrátt.
Allt okkar kjöt er taðreykt og kemur taðið frá býlinu. Við taðvinnsluna leggjum við áherslu á góð og vönduð vinnubrögð og verkum það samkvæmt gömlum hefðum, látum það veðrast vel, þurrkum, hreykjum og stöflum í stæður. Við reykjum allt kjötið með beini.
Á haustin bjóðum við upp á ferskt og frosið lambakjöt í heilum og hálfum skrokkum, niðursagað í neytendapakkningar. Kjötið tökum við heim strax eftir slátrun, látum það hanga og meyrna fyrir frystingu. Við það verður kjötið bragðmeira og er tilbúið til eldunnar strax eftir þiðnun.
Einnig er boðið upp á unna kjötvöru s.s hakk, sperðlar og kæfa.
Til margra ára höfum við reykt silung bæði úr Mývatni og eldisbleikju frá Öxarfirði. Silunginn höfum við ávallt til sölu.
Nánari upplýsingar um vöruval og verð er á eftirfarandi undirsíðum; lambakjöt, sauðakjöt, ærkjöt og reyktur silungur.


