Reykkofinn
Heimareykt - bragðsins vegna !

Við erum sauðfjárbændur á Hellu í Mývatnssveit og vinnum hluta af okkar afurðum og seljum beint til neytenda.
Við leggjum áherslu á kofareykta hangikjötið og framleiðum það samkvæmt gömlum hefðum með okkar útfærslu.
Á haustin er til sölu ferskt og frosið lambakjöt í heilum og hálfum skrokkum, niðursagað í neytendapakkningar. Okkar markmið er að afgreiða einungis úrvalskjöt sem tilbúið er til matreiðslu þ.e. læri, hryggur, bógar, framhryggjasneiðar eða súpukjöt. Rif, slög og hæklar verða ekki í pakkanum.
Einnig erum við með unna kjötvöru og er þar helst að nefna sperðla, kæfu, hakk, file og lundir.
Til margra ára höfum við reykt silung bæði úr Mývatni og eldisfisk frá nágrannasveitum og er silungurinn ávallt til sölu.
Nánari upplýsingar um vöruval og verð eru undir liðnum "framleiðslan".


