Reykkofinn
Heimareykt - bragðsins vegna ! 
Þessi heimasíða hefur að geyma upplýsingar um heimavinnslu afurða og sölu beint til neytenda.
Við bændur á Hellu í Mývatnssveit vinnum afurðir af sauðfjárbúi okkar og seljum undir eigin vörumerki beint til neytenda.
Við leggjum áherslu á kofareykta hangikjötið og framleiðum það samkvæmt gömlum hefðum með okkar útfærslu við fyrsta flokks framreiðsluaðstæður.
Á haustin er til sölu ferskt og frosið lambakjöt í heilum og hálfum skrokkum, niðursagað í neytendapakkningar. Okkar markmið er að afgreiða einungis úrvalskjöt sem tilbúið er til matreiðslu þ.e. læri, hryggur, bógar, framhryggjasneiðar eða súpukjöt. Rif, slög og hæklar verða ekki í pakkanum.
Einnig er boðið upp á unna kjötvöru og er þar helst að nefna sperðla, kæfu og hakk.
Til margra ára höfum við reykt silung bæði úr Mývatni og eldisbleikju frá Öxarfirði og er silungurinn ávallt til sölu.
Nánari upplýsingar um vöruval og verð eru undir liðnum "framleiðslan".


